Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 14. febrúar 2002, kl. 11:32:53 (4633)

2002-02-14 11:32:53# 127. lþ. 78.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.

[11:32]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þarna fer hv. þm. ekki með rétt mál. Þetta er í samræmi við svæðisskipulag miðhálendisins. Gert er ráð fyrir því í svæðisskipulagi að til þessara úrræða geti komið í sambandi við virkjunarmál norðan Vatnajökuls. Þetta eru bara staðreyndir sem liggja fyrir.