Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Herra forseti. Það vakti sérstaka athygli mína að Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, gerði ágreining innan Samfylkingarinnar að umtalsefni í ræðu sinni, að sitt sýndist hverjum um þessi áform. Ég vil spyrja hv. þm. hvort hann telji að flokkurinn verði einhuga í að samþykkja þessar framkvæmdir með þeim skilyrðum sem hann talaði um í ræðu sinni eða hvort hv. þm. telji að Samfylkingin muni klofna í málinu og sumir greiða atkvæði með en aðrir á móti.
Allir gera sér grein fyrir að hér er um gígantíska fjárfestingu að ræða, fjárfestingu Íslandssögunnar. Hv. þm. talaði um aðhaldsaðgerðir og hefur á undanförnum árum gert sig gildandi í efnahagsumræðunni á hinu háa Alþingi. Þá langar mig að spyrja hv. þm.: Hefur hv. þm. gert sér einhverjar hugmyndir um hvers konar aðhaldsaðgerðir og af hvaða stærðargráðu þær þyrftu að vera til að koma að einhverju gagni miðað við þessa stóru fjárfestingu? Yrðum við t.d. að hætta allri annarri uppbyggingu í landinu, vegagerð, uppbyggingu skóla og þess háttar, á þeim tíma sem þetta stendur yfir?