Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Það er einmitt hv. þm. sem með atkvæði sínu á að taka afstöðu til þessa máls. Ég er að auglýsa eftir þessum grunnforsendum til að ég geti m.a. mótað afstöðu mína. Okkur er sagt að við fáum ekki um þetta upplýsingar. Í minnisblaði sem kom frá Landsvirkjun á sínum tíma og hefur ítrekað komið frá þeirri stofnun er sagt að helstu forsendur samninga séu viðskiptaleyndarmál og við höfum ekki aðgang að slíkum viðskiptaleyndarmálum. En á sama tíma er ætlast til þess að Alþingi Íslendinga taki afstöðu í þessu mikla máli án þess að við fáum að vita um grundvallarforsendur þess.
Hér koma hv. þingmenn meiri hlutans upp hver á fætur öðrum og lesa úr og vitna í álitsgerðir aðskiljanlegra fyrirtækja sem ekki hafa skoðað þessar forsendur. Ég spyr: Hvað vegur hér þyngra, pólitísk afstaða manna eða fagleg skoðun á þessu máli? Ég er síður en svo að efast um heiðarleika hv. þingmanns og vilja hans til að brjóta þetta mál til mergjar. En ég er að segja að við höfum ekki forsendur til að ræða hinn efnahagslega þátt af nokkru viti án þess að þessar grundvallarstærðir séu lagðar á borðið. Það hefur ekki verið gert. Það hefur ekki verið gert í þessu frv., í álitsgerðum eða neinum þeim gögnum sem við höfum fengið í hendur.