Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Það liggur algjörlega ljóst fyrir að fara þarf ofan í ýmis álitamál í nefnd þegar þetta frv. kemur þangað. Ég er áreiðanlega ekki ein um þá skoðun. Það þarf að skoða ýmislegt betur, m.a. af hverju sú auðlindapólitík sem birtist annars vegar í þessu frv. og hins vegar í frv. til raforkulaga, sem hv. þm. stóð væntanlega að á síðasta ári, fer ekki saman. Það vekur auðvitað ákveðnar spurningar.
Þegar hv. þm. segir að ekki sé hægt að skilja þingmanninn öðruvísi en svona eða hinsegin þá hirði ég ekki um að svara því, einfaldlega vegna þess að reynsla mín er sú að hv. þm. kýs að skilja og túlka hlutina eins og honum sýnist. Ég get ekki staðið í því að reyna að leiðrétta það eða færa til baka. Ef hv. þm. kýs að skilja ræðu mína á einn veg, þá verður hann að eiga það við sjálfan sig.
Það er hins vegar alveg ljóst að ég mun í vinnu við þetta frv. reyna að gera það besta úr því og skoða þau álitaefni sem þarf að skoða.