Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Mér finnst að það sé æðimikið í það lagt að halda tímaáætlun þegar ekki liggur fyrir neinn vilji til að fara í þessa framkvæmd og að engin ákvörðun verði um það tekin fyrr en í septemer í haust. Ég tel t.d. að einkaaðilar mundu aldrei gera svona lagað. Það kæmi aldrei til mála. Áhættan sem verið er að taka er ekkert smáræði. Það eru ekki neinir smáaurar á ferðinni þegar verið er að undirbúa þessa hluti. Ef engin trygging er til frá hendi þeirra fjárfesta sem um er að ræða þá finnst mér þetta ótrúlegur glannaskapur. Ég get ekki sagt minna en það.
Ég hef litlu við að bæta í sambandi við þessi 20 ár sem ég nefndi áðan. Ég held bara að ekki sé raunhæft að láta sér detta í hug að ef álversrekstur verður enn í einhverju svipuðu formi eftir 20 ár og hann er í dag þá verði skrúfað fyrir rafmagn til álvers sem menn gera samning um núna. Ég geri fastlega ráð fyrir því og efast ekkert um það að þeir sem standa að þessum málum vilji fá tryggingu fyrir því að þeir hafi aðgang að einhverju framhaldslífi eftir 20 ár, þegar þar að kemur.
Um þrautseigju Framsfl. er það að segja að það er auðvitað arfur úr fortíðinni, þ.e. það að hafa lifað af á erfiðum tímum í gegnum aldirnar hefur skilað sér inn í Framsfl.