Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég kom hingað aðallega til að fagna því að hæstv. ráðherra tók mjög jákvætt undir það að endurskoða þyrfti eignarhaldið á Landsvirkjun. Ég held að ekki sé lítið mál að það verði gert, og það verði látið reka að því sem allra fyrst. Ég tel fráleitt að í þeirri framtíð sem verið er að tala um að skapa hér og á að skapa með nýju raforkulagafrv. geti Landsvirkjun sem ég kalla forngrip á þann máta sem hún er upp sett hvað varðar eignaraðild starfað í því umhverfi og að Reykjavíkurborg geti t.d. átt Orkuveitu Reykjavíkur í þeirri samkeppni og 45% í Landsvirkjun.
En það eru önnur atriði sem koma inn í þetta líka og það eru eignir sveitarfélaganna í Landsvirkjun. Ég tel að vandlega þurfi að fara yfir þetta mál með það fyrir augum að rétta af fyrir önnur sveitarfélög en Reykjavíkurborg og Akureyri sem eiga þarna hlut í. Hinn hluta Landsvirkjunar mætti að hluta til taka og afhenda öðrum sveitarfélögum í landinu, a.m.k. að því leyti til sem eignarhlutur Reykjavíkurborgar og Akureyrar hefur orðið til vegna eignarinnar í þessu án þess að til þess hafi verið stofnað með stofnkostnaði.