Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég er þeirrar skoðunar að þingmenn sitji hér sem heldur snoturlega gerðir hlutir, en ekki illa gerðir, að öllu leyti. Hér er mannval mikið.
Ég vil líka nefna það sérstaklega og af miklum þunga að það er auðvitað fjarri öllu lagi að menn séu að koma fram af einhverri óbilgirni gagnvart þinginu. Auðvitað eru menn ekki að því þótt menn séu að reyna að lúta samræmdum og eðlilegum reglum í samskiptum þings og framkvæmdarvalds.
Ég heyrði ekki þessar fréttir á Stöð 2 í gær. Ég get brugðist við athugasemdum hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar með því að segja að það er sjálfsagt og eðlilegt að menn fari ofan í öll þessi mál í framhaldi af þessum úrskurði og fortíð málsins. Það er sjálfsagt að gera það.
Eins og ég skil málið --- ég verð að hafa á því fyrirvara því að ég hef ekki farið nákvæmlega ofan í það --- þá skil ég það svo að þessi úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál taki til afar takmarkaðs hluta af þeirri beiðni sem frá fjárln. kom þannig að ekki sé um algjörlega sambærilega hluti að ræða, eins og mér er sagt málið. Ég hef á þessu fyrirvara því ég hef ekki haft tíma eða tök til að fara nákvæmlega ofan í það. En ég svara því beint sem hv. þm. sagði hér síðast: Auðvitað er ég tilbúinn til þess að fara nákvæmlega ofan í þetta mál og kynna mér til hlítar hvarnig það er vaxið í heild sinni.