Umræða um einkavæðingarnefnd og sölu Landssímans

Mánudaginn 18. febrúar 2002, kl. 15:23:37 (4800)

2002-02-18 15:23:37# 127. lþ. 79.91 fundur 339#B umræða um einkavæðingarnefnd og sölu Landssímans# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 127. lþ.

[15:23]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil að gefnu tilefni geta þess að samkvæmt þingsköpum er heimilt að gera athugasemdir um störf þingsins í 20 mínútur, en engum er heimilt að tala oftar en tvisvar. Ég taldi eftir atvikum rétt og nauðsynlegt að gefa hæstv. forsrh. tækifæri á því að svara þeim spurningum og athugasemdum sem hér höfðu komið fram þó svo að hann hafi tekið tvívegis til máls áður til þess að svara öðru álitaefni sem hér var tekið til umræðu og spurningum sem til hans hafði verið beint.