Svar við fyrirspurn

Þriðjudaginn 19. febrúar 2002, kl. 13:35:08 (4871)

2002-02-19 13:35:08# 127. lþ. 80.91 fundur 343#B svar við fyrirspurn# (aths. um störf þingsins), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 80. fundur, 127. lþ.

[13:35]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir sem er afar þingreynd og þekkir vel löggjöf þessa lands hefur vafalaust vitað nákvæmlega hvaða niðurstaða fengist af fyrirspurnum sem hún bar upp og gerir hér að umtalsefni. Það liggur ljóst fyrir hvernig löggjöfin er um upplýsingar hvað varðar hlutafélög. Hv. þm. getur kynnt sér það eins og hún hefur vafalaust gert í svari frá mér sem hefur verið dreift hér. Ég á ekki von á öðru en hv. þm. hafi gert sér grein fyrir að þetta svar yrði með þeim hætti sem það er.

Það liggur ljóst fyrir að það er ekki gert ráð fyrir þeim möguleika að upplýsingar úr hlutafélögum séu veittar. Það er skýrt mjög rækilega í ítarlegu og vel gerðu svari sem hér liggur fyrir þinginu.