Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Ég stend að því meirihlutaáliti sem hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson hefur mælt fyrir, og gerði vel og skýrði nokkuð vel þau markmið sem að er stefnt með því frv. sem hér er ætlunin að gera að lögum.
Ég hef hins vegar á því dálítinn fyrirvara sem fyrst og fremst lýtur að því að lítið sem ekkert er ætlað að hrófla við þeim einkarétti sem Íslandspóstur hefur haft um langt skeið, og áfram sem hingað til er líklegt að 97--99% af öllum pósti og póstsendingum í landinu verði á höndum þess fyrirtækis. Með því móti er ég ekki að lasta fyrirtækið sjálft á neinn hátt en hefði talið að með því að opna á að draga mætti úr þessum einkarétti mætti hugsanlega leita nýrra leiða til að bæta og efla póstþjónustuna.
Ég held, virðulegi forseti, að þar séum við mjög samstiga, ég og hv. þm. Jón Bjarnason. Báðir viljum við efla og tryggja póstþjónustuna frá því sem nú er sem þó hefur farið talsvert fram að mínu mati á undanförnum árum. Ég held að við séum samstiga í því en okkur greinir kannski að einhverju leyti á um þær leiðir sem hugsanlega má fara til að ná því markmiði.
Ég er sammála þeim sem hafa sagt það hér að þessi þjónusta er mjög mikilvæg og ég held að það sé almenn sátt um að reyna að tryggja að þessi þjónusta sé eins góð og verið hefur og áfram verði unnið að því að bæta hana eins og gert hefur verið. Ég er þó ekki alveg samstiga hv. þm. og hæstv. forsrh. í því að sakna pósthúsanna eitthvað sérstaklega og það er kannski ekkert skrýtið að íhaldsmennirnir tveir, hæstv. forsrh. og hv. þm. Jón Bjarnason, séu samstiga í þessum efnum og kannski oft og tíðum samstiga í því að vilja fara sér hægt í breytingar svo að ekki sé dýpra í árinni tekið.
Það eru þessi tilteknu atriði, virðulegi forseti, sem ég vildi vekja athygli á og þau gera það að verkum að ég hef þann fyrirvara sem ég hef greint frá. Þrátt fyrir að ég haldi að menn nái þeim markmiðum sem að er stefnt held ég að ganga hefði mátt lengra í því að opna á þann einkarétt sem nú er og miðast við bréf upp að 250 g auk ábyrgðarsendinga. Þetta hefur það í för með sér að Íslandspóstur hefur u.þ.b. 98% af þeirri 5--6 milljarða veltu sem er á þessum markaði. Þetta held ég að hefði mátt gera og með það að markmiði að efla og bæta þjónustuna. Hins vegar skal þó viðurkennt hér að umræða um slíka hluti, umræða um tilfærslu þjónustu, sérstaklega þegar verið er að færa frá ríki til einkaaðila, er dálítið vandmeðfarin þessa dagana. Það er alveg ljóst að ríkisstjórninni hafa ekki farist þær aðgerðir mjög hönduglega sem hún hefur staðið í undanfarnar vikur og mánuði og því er þessi umræða dálítið vandmeðfarnari nú um stundir en oft áður.
Að öðru leyti, virðulegi forseti, vil ég ítreka að ég stend að þessu frv. og stend að meirihlutaálitinu sem hér hefur komið fram með þó þeim fyrirvara sem ég hef rakið.