Stefna í byggðamálum 2002--2005

Þriðjudaginn 26. febrúar 2002, kl. 15:04:22 (5080)

2002-02-26 15:04:22# 127. lþ. 82.5 fundur 538. mál: #A stefna í byggðamálum 2002--2005# þál., EKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.

[15:04]

Einar K. Guðfinnsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Það gat auðvitað ekki vitað á gott þegar hv. þm. var farinn að hæla mér. En svarið við spurningu hv. þm. er mjög einfalt. Þetta mál var lagt fram og kynnt án þess að ég ætti aðkomu að því. Ég greindi strax frá því að ég hefði miklar athugasemdir við málið og það liggur fyrir í mínum þingflokki að ég hef fullkominn fyrirvara vegna málsins.