Einar K. Guðfinnsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Í gömlu góðu áætluninni eru nefnd átta tölusett atriði um atvinnumálin. Ég sagði að það sem hefði fyrst og fremst brugðist væri sá þáttur. Eitt af því sem við nefndum þar var t.d. að nýjum stóriðjuverkefnum yrði fundinn staður úti á landi. Því miður hefur það ekki gengið eftir að tekist hafi á þeim tíma að byggja upp ný stóriðjutækifæri þó að vonandi hilli undir það núna og ég hef trú á því.
Síðan í öðru lagi sem ég hef nefnt og eru svo sem ekki ný tíðindi úr mínum munni er einfaldlega að ég hef verið að benda á að stóri vinnuveitandinn í landinu, ríkisvaldið, hafi auðvitað mjög mótandi áhrif á það hvernig atvinnutækifærin verða til í landinu, bara með því hvar staðsetning opinberrar þjónustu og starfa eru. Ég hef margoft gagnrýnt það hér úr þessum ræðustól og víðar að ég tel að þar hafi mönnum verið mjög mislagðar hendur svo ekki sé meira sagt.