Kristján L. Möller (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 1. þm. Vestf. Einari K. Guðfinnssyni fyrir ræðu hans og hvernig hann ræddi þetta af hreinskilni, gagnrýndi áætlunina mjög eins og hún liggur fyrir. Ég vek athygli á því eins og kom fram að hér talar varaformaður þingflokks sjálfstæðismanna og ég vil líka vekja athygli á því, herra forseti, að formaður þingflokks framsóknarmanna, þingflokks hæstv. iðn.- og viðskrh., hefur líka aldeilis lýst miklum fyrirvörum á þessari áætlun í blaðaviðtölum. Það er því eðlilegt að spyrja á hvaða vegferð hæstv. ráðherra er með þessa þáltill.
En ég vildi spyrja hv. þm. út í eitt atriði. Við sátum saman í svokallaðri byggðanefnd forsrh. sem skilaði af sér í október 1998 tillögum sem við nefndum bráðatillögur um húshitun, jöfnun námskostnaðar, endurgreiðslu námslána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, sjúkrakostnað o.fl. Finnst hv. þm. ekki dálítið kyndugt að þær séu að koma núna fram sem áætlun?