Stefna í byggðamálum 2002--2005

Þriðjudaginn 26. febrúar 2002, kl. 21:23:07 (5232)

2002-02-26 21:23:07# 127. lþ. 82.5 fundur 538. mál: #A stefna í byggðamálum 2002--2005# þál., KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.

[21:23]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Það er kannski ekki miklu við þetta að bæta öðru en að mér skilst að umræða verði hér síðar í vikunni um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem hæstv. sjútvrh. mælir fyrir. Hann mun væntanlega þá skýra það hvernig hann hyggist ná fram eða mæta þeim ábendingum sem þarna koma fram í skýrslunni til ríkisstjórnarinnar.