Kjartan Ólafsson:
Herra forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda Þuríði Backman fyrir þessa fyrirspurn og þá umræðu sem hér hefur átt sér stað.
Það sem ég vil koma á framfæri er að allri matvöru sem flutt er til landsins ber að fylgja upprunavottorð. Þess vegna er mjög nauðsynlegt að við fylgjum þeim upprunavottorðum til verslunar og til neytenda, ekki síst vegna þess að við erum að opna okkar innlenda markað í æ meira mæli fyrir innfluttum vörum. Þess vegna verðum við að aðgreina okkar ágætu íslensku matvöru, ekki síst fyrir það að það er þekkt að innfluttar vörur eru settar í íslenskar umbúðir. Það er verið að blekkja neytendur með því að setja innfluttar vörur í ágætar íslenskar umbúðir og koma þannig villandi upplýsingum til neytenda og það má ekki gerast.