Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 43/1987, með síðari breytingum.
Árið 1997 var lögfest það skilyrði í lögum um lögskráningu sjómanna að til að fá lögskráningu yrði viðkomandi að hafa sótt námskeið í öryggisfræðslu hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða öðrum sambærilegum viðurkenndum aðila. Jafnframt var sett ákvæði til bráðabirgða þar sem veittur var frestur til að gefa mönnum tíma til að sækja slíkt námskeið. Þessi frestur hefur verið framlengdur í tvígang. Reynslan er sú að menn hafa frestað því að sækja námskeið á meðan lögin veittu svigrúm til þess.
Með frumvarpi þessu er því lagt til að sá sem sækir um lögskráningu og hefur ekki sótt tilskilið öryggisfræðslunámskeið fái einn frest fram að þeim tíma sem hann er skráður á námskeið. Sæki hann ekki það námskeið sem honum hefur verið úthlutað fær hann ekki lögskráningu eftir það tímamark fyrr en hann hefur lokið námskeiðinu.
Frv. er unnið í samráði við hagsmunasamtök sjómanna og útgerðarmanna, skólastjóra Slysavaraskóla sjómanna og Siglingastofnun Íslands. Í frv. er gert ráð fyrir að Siglingastofnun Íslands veiti undanþágur samkvæmt lögum þessum og annist jafnframt eftirlit með því að þeim sé framfylgt.
Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. samgn.