Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Að lokum þetta: Ég var að vekja athygli á því hvernig rannsóknarfjármagni er beint inn í vopnaiðnað þar sem rannsóknirnar og fjárfestingin gefur mest af sér. Ég er einnig að benda á umræðu sem fram fer innan vísindasamfélagsins þar sem því er haldið fram að hlutfallslega meira fjármagn fari í rannsóknir á þeim sjúkdómum sem hrjá okkur hér í hinum ríkari hluta heimsins en til að lækna mannslíkamann í hinum fátækari hluta. Þetta er nokkuð sem menn hafa áhyggjur af.
En menn ræða líka hitt, og vísa ég þar í greinar í erlendum læknatímaritum nýlega þar sem menn hafa af því áhyggjur að verið sé að draga úr grunnrannsóknum og færa rannsóknir í ríkari mæli yfir á markaðinn. Þetta er hlutur sem er að gerast og ég hef af því áhyggjur að við séum að byrja að feta okkur inn á þessar brautir.
Menn dáðust mjög að japanska módelinu hér fyrir nokkrum árum þar sem menn samtvinnuðu á ,,korpórótískan`` hátt ríki og markað og atvinnulíf. Við erum svolítið að feta okkur inn á þessa braut. Ég spyr: Verður e.t.v. opnuð ný deild í tengslum við áliðnað í háskólanum núna á komandi mánuðum? Hver veit?