Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Það er þannig að þegar alúminíum losnar úr jarðvegi og streymir t.d. út í straumvötn þá getur það við vissar aðstæður drepið allt kvikt þannig að ég tel ekkert mæla á móti því að í tengslum við nýtt álver og ný álver verði einmitt reitt af höndum fjármagn til þess að rannsaka slíkt.
Hv. þm. verður að reyna að skoða hlutina af fordómaleysi. Ég og hann erum báðir á móti stríði. En hergagnaiðnaðurinn hefur samt ýmislegt gott af sér látið leiða. Má ég taka dæmi?
Öll þjónusta og verslun í dag er í æ ríkari mæli, eins og öll mannleg samskipti, háð samskiptum okkar um netið. Hvernig varð netið til? Með vissum hætti tengdist þróun netsins hergagnaiðnaðinum að því leyti að það varð til sem upplýsingaveita innan Pentagon, sem er auðvitað angi af hergagnaiðnaðinum þó að það megi segja að það sé hluti af ... (ÖJ: Nú förum við að nálgast tilviljunarkenninguna.) Nú erum við ekki að nálgast tilviljunarkenninguna, herra forseti, heldur var í þessu tilviki um að ræða skipulega rannsóknarvinnu sem beindist að því að leysa ákveðin vandamál, þ.e. samskipti innan húss. Þau voru leyst svo frábærlega að þegar upp var staðið fólu þau í sér lausnina að ótrúlega hagkvæmum samskiptum ekki innan húss heldur um allan heiminn, milli allra húsa í heiminum.
Þetta má kalla afsprengi þess sem hv. þm. mundi sennilega kalla ,,hernaðarbrölts Bandaríkjamannanna`` af því að hann er alltaf fullur fordóma gagnvart öllu slíku. (ÖJ: Lifi Pentagon.) Það er ekki ályktunin, herra forseti. Ég dreg ekki þá ályktun. En það er hægt að benda á svo fjölmargt jákvætt sem hefur hlotist af rannsóknarvinnu sem menn hafa ráðist í í ekki mjög göfugum tilgangi.
Herra forseti. Ég er að öðru leyti sammála hv. þm. um að við verðum að reyna að gæta þess að misbeita ekki rannsóknarfé. Við eigum að nota það naumt skammtaða fé sem við höfum í eins jákvæðum og göfugum tilgangi og hægt er.