Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Það hefur legið fyrir frá upphafi, svo ég upplýsi það, að ég styð ekki þetta frv. Það hefur legið fyrir frá upphafi að ég hef haft allar efasemdir um aflakvótakerfið í þorskveiðunum. Það hefur legið fyrir frá upphafi að ég er algjörlega á móti auðlindagjaldi, bæði á sjávarútveg svo og aðrar greinar, þannig að það er allt ljóst um afstöðu mína og hefur alltaf verið.
Hv. þm. svaraði ekki spurningum mínum, ekki einni einustu. Kannski hefur hann ekki heyrt hvað ég var að segja. Ég spurði hvort ekki væri nær að reyna að ná einhverjum tökum á sjávarútveginum þannig að einhver auðlindarenta skapaðist í samfélaginu. Svo geta menn deilt um það eftir á hver á eða hvernig skipt er. En þannig er svo ég fari yfir það aftur að við höfum ekki náð neinum árangri í stjórn bolfiskveiða. Við erum hins vegar að ná ágætisárangri í stjórn uppsjávarfiskanna og fleiri tegunda sem eru sannarlega að skila þjóðfélaginu mjög miklum arði að ég held. Eins og hv. 13. þm. orðaði það áðan, hin hagstæða afkoma sjávarútvegsins hefur skilað geysilega blómlegu þjóðfélagi hér á Íslandi alla þessa öld. Það fer ekki milli mála, auður og arður í sjávarútvegi hríslast um allt samfélagið, öll síðastliðin öld ber vitni um það.
Þá spyr ég hv. þm. aftur: Er ekki nær að reyna að snúa sér að því að ná einhverjum tökum á stjórn fiskveiða þannig að um arð verði að ræða, heldur en halda áfram með þetta kerfi, aflakvótakerfi í þorski? Ég gat ekki skilið hann öðruvísi en hann væri kvótasinni. Hann ætlar bara að ná fyrst aflaheimildunum af útgerðarmönnunum og síðan ætlar hann að úthluta --- hverju? Jú, hann ætlar að úthluta kvótanum. Hann ætlar að halda áfram sama kerfi. Er ekki kerfið jafnslæmt ef það hefur sýnt okkur á sl. 18 árum að það nær engum árangri, þó að við þjóðnýtum það? Hverju erum við þá nær? Þó að Byggðastofnun eignist það eða sparisjóður eða bankar, hreppsnefndir, bæjarstjórnir, borgarstjórn eða hvað sem er, erum við einhverju nær? Ég get ekki skilið það.