Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það sem hv. þm. hefur sagt um veiðiheimildir sem menn leigja frá sér í Eyjafirði hefur verið leiðrétt mjög rösklega og myndarlega og er satt að segja undarlegt að hv. þm. skuli halda þessu áfram en auðvitað er það svo að menn geta svo sem haldið áfram að endurtaka það sem ekki er rétt eða segja hálfsannleik, en vaxa ekki af því.
Á hinn bóginn liggur það fyrir og mér finnst að hv. þm. eigi að tala um þetta efni eins og það er, að Vinstri grænir hafa lagt fram stefnu sem byggir á því að draga verulega úr togaraútgerð og hv. þm. sem hér var í andsvari nikkaði til mín þegar ég minntist á það áðan og þess vegna er ástæðulaust fyrir hann að reyna að tala nú um það í andsvari með öðrum hætti.