Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég held að sá dómur sem hæstv. ráðherra vitnaði til hafi ekki breytt neinu í þessum efnum og það sé alveg ljóst að smám saman er þessi eignarréttur að festast í sessi í höndum útgerðarmanna. Ég held að enginn dragi það í efa að undanskildum hæstv. ráðherra.
Ég hefði haldið og ég met það þannig að nú séum við að horfa til lengri tíma, við séum komin á þann tímapunkt í umræðu um sjávarútvegsmál að við þurfum að fara að ákveða með hvaða hætti þetta á að vera. Þetta skiptir miklu máli að því er varðar skipan efnahagsmála. Það skiptir miklu máli hvað varðar efnahagslífið að þessir hlutir komist á hreint og ég met það þannig þó að illa gangi að fá hæstv. ráðherra til að viðurkenna það að markmiðið með þessu sé fyrst og fremst það að tryggja varanlegan eignarrétt útgerðaraðila á veiðiheimildum. Ég get ekki lesið öðruvísi í þetta mál og ræður hæstv. ráðherra hér hafa engu breytt þar um.