Margrét Frímannsdóttir:
Virðulegi forseti. Að mínu mati snýst þetta mál ekki eingöngu um það hvort þarna er um að ræða mikinn kostnað sem fellur á foreldra eða ekki. Það getur vissulega reynst þeim erfitt. Þetta snýst líka um þann tvískinnung sem er í löggjöfinni varðandi túlkun á því hvort fíkniefnaneysla telst vera til veikinda eða ekki. Ef einstaklingar eru á meðferðarstofnun sem rekin er af heilbrrn., þá er um að ræða greiðslu á ferðakostnaði eins og um önnur alvarleg veikindi væri að ræða, langvarandi alvarleg veikindi, en þegar meðferðarstofnunin heyrir undir félmrn. þá er ekki um það að ræða. Ég held að þetta sé í þriðja, fjórða eða fimmta sinn sem þetta mál er tekið fyrir á þingi. Talað er um þessi gráu svæði, þessa skörun á milli félmrn. og heilbrrn. og nú er kominn tími til að þessu linni og það sé gert upp í eitt skipti fyrir öll. Er hér um að ræða sjúkdóm, menn geri það þá lagalega og túlkunin sé sú sama hvort sem um er að ræða sjúklinga á vegum heilbrrn. eða félmrn.