Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. og brtt. frá efh.- og viðskn. vegna frv. til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur.
Mál þetta var sent til umsagnar og fjallað var um það á fundum með fulltrúum frá fjmrn. Tillögur nefndarinnar til breytinga á frv. eru tvær og þær eru tæknilegs eðlis.
Í fyrsta lagi að notað sé orðið: endurskoðunarfyrirtæki í stað orðsins ,,endurskoðendafyrirtæki``.
Í annan stað er lögð til breyting á gildistökuákvæði. Með þessum breytingum leggur nefndin til að málið verði samþykkt.