Frsm. menntmn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir var með fyrirvara á þessu nál. Ég geri ráð fyrir að sá fyrirvari, eins og hún gerði grein fyrir, lúti eingöngu að þessu tiltekna ákvæði varðandi skylduskilin til Ríkisútvarpsins.
Ég vil sérstaklega benda á það sem ég las áðan upp úr nál. en þar segir, með leyfi forseta:
,,Ný löggjöf um skylduskil til safna leggur ríkari skyldur á hlutaðeigandi stofnanir.`` --- Við erum mjög meðvituð um það. ,,Mikilvægt er að við fjárlagagerð verði tekið tillit til þess viðbótarkostnaðar sem af þessu leiðir þannig að hin metnaðarfullu markmið frumvarpsins nái tilgangi sínum.``
Þetta er rammalöggjöf um skylduskil til safna. Ég tel afskaplega mikilvægt að þetta frv. nái fram að ganga og akkúrat þetta tiltekna atriði stoppi ekki þetta mikilvæga frv. Engu að síður ítrekar menntmn. hið mikilvæga, að aukið fjármagn verði sett til þeirra hlutaðeigandi stofnana sem þurfa að taka á sig ríkari skyldur út af þeim kvöðum sem getið er um í frv.
Síðan þurfum við náttúrlega miklu meiri umræðu um Ríkisútvarpið sem slíkt. Ég og hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir höfum báðar mjög mikinn metnað fyrir hönd Ríkisútvarpsins og við erum sammála um ákveðin atriði. Ég efast þó um að við séum sammála um hvernig rekstrarfyrirkomulagið eigi að vera á Ríkisútvarpinu. Ég vil að stokkað verði upp hjá Ríkisútvarpinu, að við förum svolítið með nýja sýn --- Ríkisútvarpið verður áfram í eigu ríkisins, í eigu þjóðarinnar --- en það er lífsnauðsynlegt að mínu mati, og segi ég það að fenginni reynslu eftir að hafa starfað hjá Ríkisútvarpinu, að stokka upp í því kerfi sem þar er við lýði. Eitt markmiðið á að vera að aukið fjármagn fari til metnaðarfullrar dagskrárgerðar.
Herra forseti. Tími minn er að renna út núna í þessu fyrra andsvari mínu. Ég tel afar mikilvægt að þetta frv. sem við erum að ræða akkúrat hér nái fram að ganga.