Landgræðsluáætlun 2003 -- 2014

Föstudaginn 08. mars 2002, kl. 13:32:43 (5833)

2002-03-08 13:32:43# 127. lþ. 93.3 fundur 555. mál: #A landgræðsluáætlun 2003 -- 2014# þál., KolH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 127. lþ.

[13:32]

Kolbrún Halldórsdóttir:

Virðulegur forseti. Í umræðunum í gær um þau tvö mál sem við nú höfum afgreitt til hv. landbn. kom fram ósk um að nefndin sendi gróðurverndar- og jarðvegsverndarþáttinn til umsagnar umhvn. Mig langar til að óska eftir því formlega að hv. landbn. geri það þannig að umhvn. hv. hafi tækifæri til að fjalla um þá þætti þessa frv. og þeirrar landgræðsluáætlunar sem hér liggur fyrir þannig að sem best og yfirgripsmest umfjöllun fáist um þetta í nefndum þingsins.