Útboð í heilbrigðisþjónustu

Föstudaginn 08. mars 2002, kl. 13:38:06 (5834)

2002-03-08 13:38:06# 127. lþ. 93.94 fundur 388#B útboð í heilbrigðisþjónustu# (umræður utan dagskrár), Flm. RG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 127. lþ.

[13:38]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ungur læknir skrifaði á dögunum um stríðsástand á Landspítalnum. Læknirinn bendir á að vegna þess að bið eftir vistun á hjúkrunarrýmum aldraðra geti skipt mánuðum, liggja aldraðir á sjúkradeildum og bráðveikir sjúklingar komast ekki inn á spítalann, þar sem fá og engin laus pláss eru fyrir hendi. Fresta þarf aðgerðum og biðlistar lengjast. Læknirinn segir að öldrunar- og endurhæfingarþjónustan sé enn annar flöskuháls og hann bendir á að þar sem 20--30 þús. manns á höfuðborgarsvæðinu séu án heimilislæknis flytjist vandamál sem hægt væri að leysa innan heilsugæslunnar inn á sjúkrahúsin, á bráðamóttökur og slysadeildina.

Þetta þekkjum við og þessi frásögn er ekki af nýjum tíðindum. En hún vekur verðskuldaða athygli vegna þess að fagmaður sem starfar á Landspítalanum setur vandamálin þar í samhengi. Lausnina á vandamálinu telur læknirinn vera einkarekstur, m.a. í heilsugæslunni, en það finnst mér vafasöm staðhæfing. Gífurleg þörf er fyrir hjúkrunarrými og frjáls félagasamtök sem reka hjúkrunarheimili víða um land hafa barist í bökkum fjárhagslega. Þau hafa ekki getað fengið sambærilegan samning og gerður var í kjölfar útboðs á Sóltúni. Þangað var veitt meira af almannafé, enda þótti Sóltúnssamningurinn milljónavirði eins og frægt varð þegar hann varð söluvara. Þá ályktun má draga af þeirri einkavæðingu að þegar ríkisstofnun eða sjálfseignarstofnun mannúðarsamtaka á í hlut er fjármagn skorið við nögl, en þegar um alvörueinkaframkvæmd er að ræða er allt annað verðlag á þjónustunni.

Frumstig heilbrigðiskerfisins, heilsugæslan, hefur verið vanrækt. Nauðsynleg uppbygging hefur ekki átt sér stað. Ofboðsleg þörf hefur myndast í heilsugæslunni sem ekki hefur fengið nauðsynlegt fjármagn og keyrt hefur um þverbak tvö undangengin ár. Þekkt atburðarás verður til. Málaflokkurinn er sveltur fjárhagslega og svo kemur lausnin: Einkavæðing. Þannig hefur hæstv. heilbrrh. fyrirvaralaust boðað útboð á rekstri nýrra heilsugæslustöðva, húsnæði og öllum rekstri --- miðað við fréttir --- þar með talinni læknisþjónustu, fyrst í Salahverfi í Kópavogi og sennilega síðar í Hafnarfirði og Heimahverfi, miðað við fréttir. Þetta eru næstu heilsugæslustöðvar sem fyrirhugað er að opna. Ekki er ljóst hvers konar útboð er hér á ferðinni eða hvernig eigi að tryggja þjónustu. Engin rök liggja fyrir um að einkaframkvæmd í heilbrigðisþjónustu sé hagkvæmari. Þvert á móti bendir reynsla erlendis frá til þess að einkarekstur sé dýrari. Erfitt er að sjá mikinn sparnað í rekstri, þar sem 70--80% kostnaðar er laun, nema ef draga á úr þjónustu. En meginmál er að það á ekki að vera hagnaðarvon í heilsugæslunni. Grunnþjónusta í heilbrigðiskerfinu lýtur ekki lögmálum framboðs og eftirspurnar. Samfylkingin leggur höfuðáherslu á að tryggja jafnrétti til heilbrigðisþjónustu og einkarekstur hefur ekki tryggt öllum sama rétt.

Fréttin um útboðið kom eins og þruma úr heiðskýru lofti fyrir þá sem mánuðum saman hafa staðið í samningaviðræðum við heilbrrn. Þannig hafði heilsugæslan í Hafnarfirði átt í viðræðum um tilteknar sértækar lausnir og í Kópavogi hafa alvarlegar viðræður við heilbrrn. verið í gangi í níu eða tíu mánuði. Í Kópavogi er áformað að taka húsnæði í Salahverfi á leigu og þörfin er sex lækna stöð. Sú stöð verður þriðja stöðin í Kópavogi þar sem íbúar nálgast óðfluga 25.000.

Á skömmum tíma hefur biðin eftir lækni farið úr þremur í tíu daga, meðan áður var hægt að komast til læknis fyrirvaralítið. Þetta er léleg þjónusta og ömurlegt ástand sem fólk vill ekki una.

Margar spurningar vakna um einkavæðingaráform heilbrigðisráðherrans. Í fyrsta lagi:

Hvers vegna útboð heilsugæslunnar núna?

Hverju hyggst ráðherrann ná fram og hvernig verður jafnrétti til heilsugæslu tryggt?

Með hvaða hætti verða stöðvarnar tengdar stjórnum heilsugæslustöðvanna, stefnu þeirra og áherslu?

Verða sambærilegar kröfur gerðar til rekstraraðila um alla þjónustu eins og stöðvanna sem fyrir eru?

Verður þeim gert að veita sömu upplýsingar og finna má um heilsugæslustöðvarnar í verkefnavísum?

Í Salahverfi í Kópavogi á fólki eftir að fjölga um helming. Hvernig verður þessi stighækkandi þjónustuþörf skilgreind og tryggð?

Hvernig kemur Læknalind, sjálfstæða einkarekna stöðin, inn í það þjónustumat?

Hvernig mun heimaþjónusta í Sölum tengjast heimaþjónustumiðstöð núverandi heilsugæslustöðva?

Herra forseti. Verður Salastöðin tengd miðlægri vörslu upplýsinga sem starfrækt er hjá hinum heilsugæslustöðvunum í Kópavogi?