Samkeppnislög

Mánudaginn 11. mars 2002, kl. 18:27:07 (5931)

2002-03-11 18:27:07# 127. lþ. 94.11 fundur 596. mál: #A samkeppnislög# (EES-reglur, ríkisaðstoð) frv. 54/2002, fjmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 127. lþ.

[18:27]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á samkeppnislögum, nr. 8/1993, með síðari breytingum.

Eins og rakið er í grg. með frv. þessu er með því verið að aðlaga XI. kafla samkeppnislaga að reglugerð Evrópusambandsráðsins nr. 659/1999 frá 22. mars 1999, um ítarlegar reglur um beitingu 88. gr. Rómarsáttmálans.

Með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 164/2001 frá 11. des. 2001, var gerð breyting á bókun 26 um valdsvið og störf Eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar. Með þeirri ákvörðun var reglugerð Evrópusambandsráðsins nr. 659/1999, um ítarlegar reglur um beitingu 88. gr. Rómarsáttmálans, felld inn í EES-samninginn. Ákvæði umræddrar 88. gr. Rómarsáttmálans er sambærilegt 62. gr. EES-samningsins og kveður á um að stöðugt skuli fylgjast með öllum kerfum vegna ríkisaðstoðar sem eru til á yfirráðasvæðum samningsaðila, svo og öllum áætlunum um að veita slíka aðstoð eða breyta henni með það í huga að þau samrýmist 61. gr. EES-samningsins. Framkvæmdastjórn ESB og Eftirlitsstofnun EFTA sinna þessu eftirliti, annars vegar á grundvelli 88. gr. Rómarsáttmálans og hins vegar á grundvelli bókunar 26 við EES-samninginn. Í stuttu máli er markmiðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á bókun 26 að tryggja Eftirlitsstofnun EFTA sambærilegar heimildir og framkvæmdastjórn ESB er falin með reglugerð Evrópusambandsráðsins nr. 659/1999. Flestar þær heimildir sem um ræðir hefur Eftirlitsstofnun EFTA haft áður en í reglugerðinni er kveðið skýrar á um nokkur atriði en verið hefur. Kallar reglugerðin því á minni háttar breytingar á XI. kafla samkeppnislaga um framkvæmd samkeppnisreglna o.fl. samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

Nánar tiltekið er í frumvarpi þessu kveðið á um eftirfarandi þrjú atriði:

1. gr. frv. byggir á 22. gr. reglugerðar Evrópusambandsráðsins nr. 659/1999. Samkvæmt greininni er Eftirlitsstofnun EFTA veitt heimild til vettvangsskoðunar enda sé fylgt þeim starfsreglum sem settar eru í bókun 3 með samningnum um Eftirlitsstofnun og dómstól EFTA um störf og valdsvið Eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar.

Í reglugerð Evrópusambandsráðsins nr. 659/1999 er kveðið á um að hafi Eftirlitsstofnun EFTA alvarlegar athugasemdir um að ákvörðunum hennar sé hlítt skuli hún eiga þess kost að grípa til frekari úrræða sem gera henni kleift að afla nauðsynlegra upplýsinga til þess að sannreyna hvort ákvörðunum hennar sé hlítt með skilvirkum hætti. Vettvangsheimsóknir í eftirlitsskyni séu viðeigandi og nothæft úrræði, einkum í tilvikum þar sem aðstoð kann að hafa verið misnotuð. Því beri að heimila Eftirlitsstofnuninni að fara í vettvangsheimsóknir í eftirlitsskyni og skuli hún njóta samvinnu við lögbær yfirvöld í þeim aðildarríkjum þar sem fyrirtæki er andvígt slíkri heimsókn.

[18:30]

Í því skyni að sannreyna hvort viðkomandi ákvörðun sé hlítt skulu embættismenn sem Eftirlitsstofnun EFTA viðurkennir hafa umboð til þess að:

a. fara inn á allt athafnasvæði og land hlutaðeigandi fyrirtækis;

b. fara fram á munnlegar skýringar á staðnum;

c. rannsaka bókhald og önnur viðskiptaskjöl og taka afrit eða krefjast þeirra.

Annað meginatriði frv. lýtur að 2. gr. þess en hún byggir á 14. gr. reglugerðar Evrópusambandsráðsins, nr. 659/1999, og kveður á um endurgreiðslu ólögmætrar ríkisaðstoðar. Reglu þessa efnis hefur verið að finna í leiðbeiningarreglum Eftirlitsstofnunar EFTA um ríkisaðstoð. Í reglugerðinni kemur fram að endurgreiðsla ólögmætrar ríkisaðstoðar skuli fara fram án tafar og í samræmi við fyrirmæli laga hlutaðeigandi aðildarríkis. Ásamt aðstoðinni, sem ber að endurgreiða samkvæmt ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA um endurgreiðslu, skal greiða hæfilega vexti sem Eftirlitsstofnun EFTA ákveður. Greiða ber vexti frá þeim degi að þiggjandanum var fengin hin ólöglega aðstoð til umráða og fram til þess dags að hún er endurgreidd. Hlutaðeigandi stjórnvald ber ábyrgð á því að gerðar séu ráðstafanir til að endurheimta ólögmæta aðstoð frá þiggjanda hennar í samræmi við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA um endurgreiðslu.

Þriðja meginatriði frv., herra forseti, felst í því að lagt er til að fjmrh. verði í stað viðskrh. heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd reglna EES-samningsins um ríkisaðstoð til aðila hér á landi, og er hér komin skýringin á því hvers vegna fjmrh. flytur þetta frv. en ekki viðskrh. Heimild fjmrh. lýtur eingöngu að reglum um ríkisaðstoð en viðskrh. mun eftir sem áður fara með aðra framkvæmd laganna. Er þessi breyting lögð til þar sem fjmrn. fer með þau mál er lúta að ríkisstyrkjum.

Vil ég leyfa mér að leggja til, herra forseti, að frv. verði að umræðu lokinni vísað til 2. umr. og hv. efh.- og viðskn.