Þuríður Backman (andsvar):
Herra forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að ég er of bundin í huganum við afgreiðslu lækna úti á landsbyggðinni. Ég hef verið með hugann við útköll, þ.e. þegar kallað er á lækni. Vissulega eru ekki alls staðar starfandi læknar og því miður eru heldur ekki alls staðar reknar lyfjaverslanir. Mjög áhugavert væri því að gera úttekt á því hvernig munstrið hefur breyst frá því lögunum var breytt síðast.
Það sem mig langaði til að segja um vaktskyldu á milli hverfa er að í dag ráða hin rekstrarlegu sjónarmið. Trúlega hefur ekki verið mikill gróði af því að hafa opið á nóttunni. Mér finnst þessi starfsemi í raun ekkert óskyld annarri heilbrigðisstarfsemi þó þarna sé um einkarekstur að ræða. Því tel ég að hægt sé að leggja ákveðnar skyldur á herðar þeim sem reka lyfjaverslanir.