Karl V. Matthíasson:
Herra forseti. Hér ræðum við frv. til laga um breytingu á lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl., með síðari breytingum. Í umræðunni hefur komið fram að þetta frv. er lagt fram vegna annars frv. sem var rætt um daginn, um Landgræðsluna og breytingar á lögum um hana. Því er ekki óeðlilegt að þetta frv. komi fram til samræmis.
Nokkuð hefur verið rætt um ítölu sem er í raun og veru kvóti sem segir hversu mikið búfé má vera á hverjum og einum stað. Það sem skiptir máli í þessu sambandi er náttúrlega það að landið sé ekki ofbeitt og að ekki sé of mikill búfénaður á ákveðnum landsvæðum, hvort sem um hesta, sauðfé eða einhvern annan fénað er að ræða ... (Gripið fram í: Fiðurfénað.) Fiðurfénað, segir einn hv. þm. Sumir telja að gæsir og álftir hafi töluverð áhrif á gróður á hálendinu, og er ágætt að menn séu sér meðvitaðir um það hvernig slíkur fénaður getur unnið. En það er mikilvægt eins og ég segi, herra forseti, að um þetta sé sátt. Einnig skil ég ekki, herra forseti, ef gert er ráð fyrir því í þessu frv. að annaðhvort séu svæði algerlega afgirt eða ekki eins og hv. þm. Þuríður Backman nefndi áðan um möguleika á að takmarka beit á ákveðnum svæðum. Er hægt að gera það með einhverjum hætti, jafnvel þannig að á afgirtu svæði megi vera 100 kindur en alls ekki 200, o.s.frv.? Ég tek undir spurningu hv. þm. Þuríðar Backman um þessi efni, hvort hægt sé að hugsa sér að hafa einhvers konar ítölu á lokuðum svæðum, hvort það hafi komist til tals.
Svo má benda á að frá því að þessi lög voru samþykkt þar sem ítalan kemur fyrir, eða kvótinn --- kannski mætti kalla hann beitarkvóta, það er allt í kvótum í dag --- hefur fé fækkað alveg gífurlega en samt hefur landinu hrakað á sumum svæðum hvað varðar gróðurfar. (Landbrh.: Það er rangt.) Þá er spurning þar sem það hefur verið hvort aðrir þættir en bara fénaður valdi gróðureyðingu, t.d. uppblástur og jafnvel mannaferðir og umgengni um landið á stórum tækjum. Það er það sem ég vildi víkja að. Ef það er hins vegar ekki rétt eins og hæstv. landbrh. kallaði fram í gleðst ég yfir því, og er gott ef til eru tölur og gögn um það.
Þetta vildi ég segja, herra forseti, að ég tel ósköp eðlilegt að þetta frv. komi fram og svo fer það væntanlega til hv. landbn. þar sem við munum fjalla um það og skoða öll þessi atriði sem hafa verið nefnd.