Afréttamálefni, fjallskil o.fl.

Þriðjudaginn 12. mars 2002, kl. 15:37:42 (6045)

2002-03-12 15:37:42# 127. lþ. 95.11 fundur 593. mál: #A afréttamálefni, fjallskil o.fl.# (ítala o.fl.) frv., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 127. lþ.

[15:37]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Mér er ljóst að samkvæmt frv. lendir þetta á sveitarstjórnunum. Það sem ég var að velta fyrir mér var hvort sveitarstjórnunum hefðu verið tryggðar tekjur á móti þeim kostnaði sem þær eiga að taka á sig.

Nú átta ég mig ekki nákvæmlega á hversu mikið umfangið er. Vafalaust er það misjafnt eftir landsvæðum og afréttum. Ég er að leita eftir svari við því hvort sveitarstjórnunum séu tryggðar tekjur á móti þessum aukna kostnaði.