Afréttamálefni, fjallskil o.fl.

Þriðjudaginn 12. mars 2002, kl. 15:38:59 (6047)

2002-03-12 15:38:59# 127. lþ. 95.11 fundur 593. mál: #A afréttamálefni, fjallskil o.fl.# (ítala o.fl.) frv., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 127. lþ.

[15:38]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekki viss en ég held að ég fari með rétt mál þegar ég held því fram að afgreitt hafi verið mál frá Alþingi um að þegar frumvörp um að auka kostnað sveitarfélaganna komi til umfjöllunar skuli hafa um það samráð við sveitarfélögin. Ef ég man rétt átti einnig að kostnaðarmeta slíkt hjá Byggðastofnun, varðandi það hvaða áhrif þetta gæti haft á byggð í landinu.

Ég vil ítreka spurningu mína og spyrja hvort við samningu þessa frv. hafi þessa samráðs verið leitað.