Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Í nýlegri umræðu sem hér fór fram um byggðamál var m.a. komið inn á þessi mál eins og hér hefur verið gert í dag. Dregið er fram í dagsljósið að ekki hafi tekist að fylgja eftir þeirri stefnumótun sem stjórnarflokkarnir lögðu upp með í síðustu alþingiskosningum, að það væri mikill vaxtarbroddur í að færa störf út á land. Það hefur því miður ekki gengið eftir.
Iðulega verða til ný störf á vegum ríkisins. Það er líka verið að stofna nýjar stofnanir. Mér finnst mikið hafa skort á að menn horfi til þess að þau störf séu staðsett úti á landi.