Jón Bjarnason:
Herra forseti. Ég vek athygli á því að Alþingi hefur samþykkt framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna. Ég vil líka vekja athygli á að í þeirri ályktun stendur, með leyfi forseta:
,,Ráðuneytum og ríkisstofnunum verður sent umburðarbréf þar sem kynnt verður sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að í öllum tölfræðilegum samantektum og skýrslum verði upplýsingar greindar eftir kyni.``
Það hef ég ekki séð í þessari skýrslu sem hér er verið að ræða um.
Sömuleiðis stendur í ályktuninni um átak til að auka hlut kvenna í nefndum og ráðum á vegum ráðuneytisins, með leyfi forseta:
,,Þegar skipað er í ráð og nefndir á vegum ráðuneytisins skal taka mið af jafnréttissjónarmiðum og kalla til fólk af báðum kynjum eftir því sem kostur er.``
Ég tel að í þessari skýrslu hefði einnig átt að nálgast þessar upplýsingar, hvernig kynjaskiptingin væri í nefndum og ráðum á vegum ríkisins, og ég beini því til hæstv. forsrh. sem hefur með umsýslu allra ráðuneytanna að gera hvort hann telji ekki eðlilegt að eftir þessum upplýsingum sé kallað.