Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég vil einnig þakka fyrir þessa ágætu umræðu og ábendingar og tek undir það með hv. fyrirspyrjanda að það er iðnaðarstarfsemi á landsbyggðinni og stórbýli sem fyrst og fremst þurfa á þriggja fasa rafmagni að halda. Ég tel að það hafi verið brotið í blað með þeirri vinnu sem fór fram í áðurnefndri nefnd þannig lagað séð, að nú vitum við miklu meira um það hvar þörfin er brýnust og það er mikið atriði vegna þess að ekki verður farið út í það að þrífasa allt landið. Það er alveg ljóst.
Það sem ég nefndi í sambandi við þessa tækni sem kölluð hefur verið rafhrútar, þá er því miður ekki hægt að segja að sú tækni bjargi öllum málum. En hún getur orðið til hjálpar á ákveðnum stöðum og er raunar í þróun enn þá en hún leysir einhver mál.
Eins og ég sagði áðan er það sem er allra brýnast upp á 230--250 milljónir en samt sem áður eru brýn verkefni líka sem hljóða upp á meira en milljarð kr.
Í síðustu viku var fjallað um þetta mál í ríkisstjórn og þá var ákveðið að fela iðnrh. og fjmrh. að móta tillögur um það hvernig farið skuli í verkefnið með ákveðinni aðgerðaáætlun og þar af leiðandi kostnaðaráætlun. Það tel ég vera mikilvægt. Þó að þetta sé að sjálfsögðu unnið hjá sveitarstjórnum þá er þetta unnið þannig skulum við vona og trúa að það sé í samvinnu við íbúa sveitarfélaganna. Ég tel þetta mikilvægt mál og þess vegna legg ég áherslu á að farið verði í aðgerðir til þess að bæta þarna úr og það eru ekki nema um 100 millj. kr. sem hafa farið á ári síðastliðin ár í þetta verkefni. Auðvitað þyrfti það að vera meira vegna þess að við sjáum hvað verkefnið er brýnt.