Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Hv. þm. Margrét Frímannsdóttir hefur beint til mín spurningum um stöðu fyrirhugaðra framkvæmda við Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi og flutning starfsemi Ljósheima, öldrunardeildar sjúkrahússins, í annað húsnæði.
Síðla árs 1999 hófst undirbúningur að viðbyggingu við Sjúkrahús Suðurlands með gerð nýtingaráætlunar þar sem skilgreindar eru þarfir heilbrigðisstofnunar á Suðurlandi. Hér var um viðamikið verk að ræða þar sem farið var yfir nýtingu gamla sjúkrahússins og hvort þær stoðdeildir sem fyrir eru nægðu þó við bættist aukin starfsemi sem eru 26 hjúkrunarrými fyrir aldraða ásamt aukinni starfsemi heilsugæslustöðvar. Bornir voru saman þeir kostir sem til greina komu. Markmiðið var að leggja niður Ljósheima sem hjúkrunarheimili fyrir aldraða og bæta aðstöðu heilsugæslustöðvarinnar á svæðinu ásamt því að færa aðstöðu framkvæmdarstjórnar og sumarbústaða á lóðinni í viðunandi húsnæði. Þá var ákveðið að bæta skrifstofuaðstöðu yfirmanna stofnunarinnar, lækna og hjúkrunarfræðinga en sú aðstaða var mjög þröng.
Kostur sá sem endanlega var valinn nýtir til fulls allar stoðdeildir og stoðrými sem fyrir eru í stofnuninni. Í byrjun árs 2000 valdi stjórn sjúkrahússins hönnuði til að vinna að frumáætlun verkefnisins. Haldnir voru 19 fundir með arktitekt, starfsfólki og kjörinni byggingarnefnd sem stjórnin kaus til þess að vinna að málinu. Að lokum var sú heildarmynd sem samkomulag varð um útfærð af arkitekt sem tillaga að lausn málsins. Má segja að teikningar að grunnfleti hæðanna séu tilbúnar til nánari útfærslu.
Hér verður um að ræða tveggja hæða byggingu, um 1.100 fermetra að flatarmáli með kjallara undir a.m.k. helmingi byggingarinnar. Samningar við hönnuði til að ljúka fullnaðarhönnun standa yfir og mun þeim væntanlega ljúka á allra næstu dögum. Þegar hönnun þessara bygginga er lokið og verkið tilbúið til útboðs verður það boðið út á hefðbundinn hátt og ættu framkvæmdir að geta hafist innan árs eða í ársbyrjun 2003. Áformað er að bjóða út 1. áfanga verksins eftir nk. áramót og ákveðið að 1. áfangi verði að steypa upp allt húsið og ganga frá því að fullu að utan og innréttingu 2. hæðar.
Ég hef fulla ástæðu til að halda að fjármögnun verksins geri mögulegt að ljúka framkvæmdum á stuttum tíma, en að því loknu verði hjúkrunarheimilið að Ljósheimum lagt niður en því var komið upp fyrir um 20 árum og hefur verið eins og kunnugt er mjög brýn þörf að leysa úr þeim vanda. Með hinni nýju viðbyggingu leysist sá vandi.
Ég vona að þessar upplýsingar hafi svarað spurningum hv. þm.