Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég endurtek að ég tel að breytingar í þessum málum þurfi að byggjast á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um hvernig verkaskiptingunni er háttað.
Ég leyni því ekkert að ég er þeirrar skoðunar að ríkið eigi að taka þessi 15% yfir m.a. til þess að komast hjá því að fara að semja flókna reglugerð um það hvað teljist til meiri háttar viðhalds eða ekki. Það er ekkert einfalt mál. Endalaust er hægt að deila um það hvað telst til meiri háttar viðhalds og hvað ekki.
Ég hefði viljað hraða þessum viðræðum. Ég vil að málið verði sett í þann farveg að hraða viðræðum vegna þess að það er alveg rétt sem hv. þm. taldi upp hér að ágeiningur er eða skoðanaskipti við nokkur sveitarfélög út af þessu máli og hann er af dýpri rótum runnin en að þarna sé bara um viðhald að ræða. Einstaka sveitarfélög telja að misræmi sé í greiðslum sveitarfélaga á þessum 15% og það er óþægilegt að hafa þetta svona. Þetta er ekki hrein verkaskipting. Um þetta gilda heldur loðnar reglur eins og fram hefur komið og ég vildi helst komast hjá því að setja slíka reglugerð, m.a. vegna þess að ég vil gera þessa verkaskiptingu hreinni. Ég tel að ríkið eigi að taka þessi 15% yfir en sveitarfélögin eigi þá að taka eitthvað annað í staðinn sem hentar betur að þau fari með.