Afgreiðsla iðnaðarnefndar á virkjanafrumvarpi

Þriðjudaginn 19. mars 2002, kl. 13:43:40 (6221)

2002-03-19 13:43:40# 127. lþ. 99.91 fundur 412#B afgreiðsla iðnaðarnefndar á virkjanafrumvarpi# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur, 127. lþ.

[13:43]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill í tilefni af þessari umræðu, af því að hér er fjallað um störf þingsins, vekja á því athygli sem að honum snýr eftir hina þinglegu afgreiðslu mála að hann veit ekki betur en að rétt hafi verið að málinu staðið hvað það varðar, en tekur auðvitað ekki afstöðu til annarra atriða sem hér hafa verið rædd.