Fullgilding samnings Fríverslunarsamtaka Evrópu og Makedóníu

Þriðjudaginn 19. mars 2002, kl. 13:59:18 (6231)

2002-03-19 13:59:18# 127. lþ. 99.2 fundur 566. mál: #A fullgilding samnings Fríverslunarsamtaka Evrópu og Makedóníu# þál. 7/127, Frsm. SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur, 127. lþ.

[13:59]

Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. utanrmn. um till. til þál. um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Makedóníu.

,,Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á samningi milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og lýðveldisins Makedóníu sem undirritaður var í Zürich 19. júní 2000.

Utanrmn. leggur til að tillagan verði samþykkt og er einróma í afstöðu sinni til málsins.