Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Herra forseti. Ég þakka sérstaklega fyrir umræðuna sem hér hefur farið fram vegna þess að mér finnst hafa verið mikill samhljómur í henni. Þar hafa að sjálfsögðu verið undantekningar og það er mál sem við þekkjum. Einn stjórnmálaflokkur ætlar að vera á móti þessu máli og í sjálfu sér sé ég ekki að þeir atburðir sem núna hafa átt sér stað breyti nokkru þar um.
Það er óvissa í þessu máli og þeirri óvissu hefur ekki verið eytt með orðum mínum áðan, það er ljóst. Yfirlýsingar er að vænta á næstu dögum, í seinasta lagi í upphafi næstu viku. Þá skýrist þetta mál frekar.
Noral-verkefnið er stórt verkefni. Íslensk stjórnvöld hafa unnið að því verkefni af miklum heilindum og ég tel mjög mikilvægt, vegna framhaldsvinnunnar og ekki síður vegna þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram, að íslensk stjórnvöld og hv. Alþingi standi við það sem upp á þau stendur í þessu máli. Þá á ég ekki síst við að samþykkja frv. um Kárahnjúkavirkjun.
Ég vil nota þetta tækifæri og þakka sérstaklega þeim nefndum sem unnu að því máli, iðnn., umhvn. og efh.- og viðskn., fyrir mjög vönduð og góð vinnubrögð. Verkefnið sem hér er um að ræða er arðbært. Því hafa allir haldið fram sem komið hafa að málinu. Það styrkir stöðu okkar sem þjóðar hvað þetta varðar að við höfum náð í gegnum Kyoto-bókunina ákveðnu ákvæði sem styrkir stöðu okkar. Við vitum líka að önnur álfyrirtæki í heiminum hafa horft til Íslands og það styrkir okkur í þeirri trú að þó að þarna geti orðið breytingar hvað varðar norska fyrirtækið Norsk Hydro þá er ekki öll nótt úti.