Kolbrún Halldórsdóttir (um fundarstjórn):
Virðulegi forseti. Ég kem hér einungis í tilefni af orðum hv. þm. Hjálmars Árnasonar. Hann gat þess í ræðu sinni um fundarstjórn forseta rétt áðan að hæstv. ráðherra hafi talað við þá ræðumenn sem næstir væru á mælendaskrá.
Ég vil upplýsa það, herra forseti, að hæstv. ráðherra kom að máli við mig en ég er, ef ég man rétt, þriðji þingmaður á mælendaskrá núna. Hæstv. ráðherrann sagði mér að til stæði að hún færi til Akureyrar. Ég vil að það komi skýrt fram að ég sagði við hæstv. ráðherra að hún yrði auðvitað að taka sínar ákvarðanir en ég mundi sakna hennar. Hv. þm. Hjálmar Árnason getur þannig ekki haft betri vitund um samtal okkar en ég hef. Það er hér með upplýst.