Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Vegna þess sem hv. þm. Ögmundur Jónasson sagði um vinnslu nál. hv. iðnn. þá er rétt að taka fram hér að það kemur fram í umsögn meiri hluta efh.- og viðskn. að á fund nefndarinnar hafi komið hagfræðingar sem ekki voru á sömu skoðun, en það er mat meiri hluta efh.- og viðskn. að málflutningur þeirra hafi ekki verið trúverðugur.
Að öðru leyti varðandi það hvort ég hafi ekki áhyggjur af því að ekki skuli vera kominn kaupandi að þessari orku þá er alveg ljóst að samkvæmt lögum um Landsvirkjun þá verður ekki ráðist í þessar framkvæmdir nema kaupandinn sé klár. Reyðarál er að sönnu til. Eftir er að ljúka við fjármögnuna á verkefninu sem slíku. Ef Norsk Hydro hrekkur úr skaftinu þá koma væntanlega aðrir aðilar þar að því búið er að sýna fram á að þetta er geysilega arðbært og gott verkefni, bæði álverið og virkjunin. Þess vegna er það trú mín að ráðist verði í þessi verkefni á þeim forsendum sem hér liggja fyrir.