Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Föstudaginn 22. mars 2002, kl. 15:51:12 (6540)

2002-03-22 15:51:12# 127. lþ. 103.3 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 127. lþ.

[15:51]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Af því hv. þm. nefndi ástandið á Austurlandi og Austfirðinga í þessu sambandi vil ég að hér komi fram að við munum að sjálfsögðu funda með Austfirðingum sem allra fyrst þó ekki sé hægt að nefna daginn á þessari stundu. En ég held að það sé nauðsynlegt að fara yfir málið með þeim á opnum fundi. Ég mun beita mér fyrir því að sá fundur geti farið fram sem allra fyrst.