Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):
Herra forseti. Því eru nánast engin takmörk sett hvað ég gæti ímyndað mér að væru verðug verkefni til rannsókna fyrir hafrannsóknaskip okkar Íslendinga. Hins vegar er það þannig í þessu máli eins og öðrum að fjárhagslegar skorður eru reistar við því hvað við getum aðhafst mikið eða rannsakað mikið og það eru þær fjárveitingar sem Alþingi lætur til starfseminnar renna hverju sinni sem því ráða.
Það er mjög ánægjulegt að við skulum eiga svo gott hafrannsóknaskip sem hinn nýi Árni Friðriksson er. Hann er hins vegar dýrari í úthaldi en eldra skipið, en sem betur fer er hann líka afkastameiri og hefur það sýnt sig nú þegar hann nær að klára rannsóknir á styttri tíma sem áður tóku lengri tíma vegna hæfni skipsins. Reynt er á hverjum og einum tíma að nýta skipakost Hafrannsóknastofnunar sem best miðað við þá fjármuni sem til ráðstöfunar eru og það verður gert á þessu ári sem endranær. Lögð hefur verið upp skipa\-áætlun. Hún er auðvitað til endurskoðunar komi upp óvæntir atburðir eða einhverjar þær breytingar verða í hafinu sem þarf að rannsaka og verður kappkostað af hálfu ráðuneytisins og Hafrannsóknastofnunar að skipið og fjármunirnir nýtist sem best og að rannsóknir okkar skili sér í þeim ákvörðunum sem taka þarf á sviði fiskveiðanna.