Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Við ræðum hér breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum. Eins og segir í athugasemdum með frv. er tilgangur þess að tryggja að unnt verði að ljúka átaki til einsetningar grunnskólans. Eins kemur fram að frv. feli í sér aukin fjárframlög til verkefnisins frá því sem áður var ákveðið.
Þegar maður les þessar línur getur maður nú ekki annað séð en að allt gott sé um þetta frv. að segja. En eins og komið hefur fram í máli þeirra þingmanna sem talað hafa við þessa umræðu er ýmislegt athugavert við frv. Ýmsar spurningar vakna þegar menn skoða greinar þess og sérstaklega má þar nefna ákvæði sem kemur inn og snýr að einkaframkvæmdinni.
Ég hefði líka talið, herra forseti, að e.t.v. hefði ekki verið óeðlilegt að hæstv. menntmrh. væri viðstaddur þessa umræðu. (GÁS: Hann hefði gott af því.) Ég hefði talið fullkomlega eðlilegt að hann væri hér. Ýmsar spurningar hafa vaknað hér sem er ósvarað og snúa að honum. Eins og fram kom í máli hv. þm. Svanfríðar Jónasdóttur hafa legið spurningar hjá honum sem snúa að þessu sem engin svör hafa fengist við. Þar hefur m.a. verið spurt: Hvaða sveitarfélög hafa frestað einsetningunni? Hvaða sveitarfélög hafa farið í þá framkvæmd? Það er talað um að það sé líklega aðeins eitt. En ég hefði gjarnan viljað bæta við í spurningarnar: Eru þessar 65 millj. sem kveðið er á um í 1. gr. allar ætlaðar Hafnarfirði? Er það meiningin? Af hverju stendur þá ekki í greininni að 65 millj. kr. séu ætlaðar til Hafnarfjarðar, úr því að það er bara um hann að ræða? Eða er verið að hvetja önnur sveitarfélög til að fara út í einkaframkvæmd með svona ákvæði inni í lagagrein?
Ég verð að taka undir spurningar og vangaveltur varðandi bókhaldsfærsluna sem hér hafa komið fram. Ég ætla ekki að lengja þá umræðu en tel að allmörgum spurningum sé ósvarað í þeim efnum og velti fyrir mér hvort fleiri nefndir en félmn. ættu að fá þetta frv. til skoðunar í meðförum þingsins. Er e.t.v. ástæða til að menntmn. skoði þetta og jafnvel efh.- og viðskn.? Hér eru auðvitað bókhaldsspurningar sem menn hafa verið að velta fyrir sér og er kannski ástæða til þess að skoða.
Auðvitað munum við velta þessu fyrir okkur í félmn. þegar þar að kemur og án efa kalla eftir þeim spurningum sem ósvarað er þegar hæstv. ráðherra hefur lokið máli sínu. Ég býst náttúrlega við að hann komi hér á eftir og svari þeim spurningum sem vaknað hafa í þessari umræðu og varpað hefur verið fram hér.
Ég ætla ekki að gera þetta mál lengra en tek undir þær spurningar sem hér hafa komið fram og tel að ýmislegt þurfi að skýra í þessu máli.