Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Mánudaginn 25. mars 2002, kl. 22:32:10 (6656)

2002-03-25 22:32:10# 127. lþ. 104.5 fundur 630. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (gróðurhúsaafurðir og garðávextir) frv. 84/2002, SvanJ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 127. lþ.

[22:32]

Svanfríður Jónasdóttir (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er út af fyrir sig ágætt að fá þær útlínur sem einhverjir hafa ákveðið að vinna eftir hér, að þessu máli verði lokið og tveimur næstu. Ég vil þá spyrja forseta hvort einu gildi hvenær þeirri umræðu lýkur. Liggur fyrir að þessum málum verði lokið eða hefur forseti einhver tímamörk varðandi þennan fund hér, hversu lengi hann má standa?