Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Mánudaginn 25. mars 2002, kl. 22:32:44 (6657)

2002-03-25 22:32:44# 127. lþ. 104.5 fundur 630. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (gróðurhúsaafurðir og garðávextir) frv. 84/2002, Forseti ÁSJ
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 127. lþ.

[22:32]

Forseti (Árni Steinar Jóhannsson):

Eins og forseti sagði áðan er áformað að halda þingfundi áfram allt fram undir miðnætti og getur fundur því samkvæmt skilningi forseta staðið fram undir 23.30--23.45. Forseti mun taka afstöðu til þess eftir því hvernig þessum málum vindur fram og mun slíta fundi fyrir miðnætti ef umræðu um þau mál sem forseti gat um áðan lýkur ekki.