Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Mikil vinna hefur verið lögð í þessa skýrslu á vegum heilbrrn. Hún hefur reyndar verið í vinnslu nokkuð lengi. Ég tel einboðið að ræða hana og er tilbúinn í þá umræðu hvenær sem er. Ég hef rætt það innan ráðuneytisins hvernig við gætum brugðist við eða sett af stað vinnu í framhaldi af þessari skýrslu, sem ég tel rétt að gera. Ég mundi þá gera nánari grein fyrir því þegar sú umræða færi fram.