Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. sagði að heimurinn væri ekki alltaf einfaldur og þægilegur við okkur og það sannast svo sannarlega á hv. þm. Mér finnst að heimurinn sé ekki ákaflega þægilegur fyrir hann þegar hann er að ræða um Evrópusambandið og þá kosti sem uppi eru. Hv. þm. sagði líka að menn yrðu að vera einarðir og samkvæmir sjálfum sér. Nú er það svo að hv. þm. hefur sagt: ,,EES-samningurinn er ekki góður. Evrópusambandið er ekki gott.`` Og hvað vill hv. þm. þá? Það kemur fram í þeirri tillögu sem hv. þm. vísaði til, þar sem stefna VG birtist í utanríkismálum. Hann vill tvíhliða samning við Evrópusambandið. Það er líka komin reynsla á tvíhliða samninga. Svissarar gerðu tvíhliða samninga við Evrópusambandið. Það tók átta ár. Þeir vörðu til þess óhemju fé, slökuðu miklu til. Hver var útkoman? Hún var verri. Réttindin sem þeir fengu voru verri en gilda innan EES-svæðisins. Því verður hv. þm. að svara þessu: Hvers vegna ættu Íslendingar að ná betri samningum en Sviss sem er þó landfræðilega ákjósanlega staðsett til þess að ná þeim?
Varðandi síðan fiskveiðimálin sem hv. þm. gerði hér að umræðu þá er það mikilvægt að hann fellst á að flotar erlendra þjóða munu ekki geta siglt inn í lögsöguna. Hann talar eingungis um flökkustofna. Nú er það hins vegar þannig, herra forseti, að réttur til veiða á flökkustofnum byggir líka á veiðireynslu. Þessar þjóðir verða því að hafa veiðireynslu. Hún er ekki til staðar. Þar að auki, herra forseti, gilda nú þegar alþjóðlegir samningar sem Evrópusambandið á í mörgum tilvikum aðild að þannig að það er ekki sambærilegt.
Varðandi Möltu þá er ekki hægt að bera Möltu saman við Ísland vegna þess að Malta er eyja í miðju Miðjarðarhafinu og deilir öllum fiskstofnum með Norður-Afríku og löndum Miðjarðarhafsins. Þarna eru allt saman sameiginlegir fiskstofnar. Dr. Borg, utanríkisráðherra Möltu, segir í Möltutímanum í gær að þeir séu mjög ánægðir með það sem þeir náðu fram vegna þess að þeim tókst að ná því fram að reka út flota stórra togara frá Sikiley. Þeir sögðu: Niðurstaðan er góð fyrir Möltu. Það er dómur reynslunnar.