Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. 3. þm. Suðurl. Margrét Frímannsdóttir ræddi heilmikið um hvað umræðan um Evrópuambandið hefði verið takmörkuð og að reynt hefði verið að banna hana af einhverjum ákveðnum aðilum þannig að hún fengi ekki sinn þroska eins og hv. þm. orðaði það nokkurn veginn. Ég velti því fyrir mér hvað hv. þm. er að meina þegar hún segir að einhverjir séu að reyna að koma í veg fyrir þessa umræðu. Ég veit ekki betur en þessi umræða hafi verið mjög áberandi í fjölmiðlum í mörg ár og flokkar, m.a. hennar eigin flokkur hefur gefið út sérstaka bók um Evrópumálin. Ég veit ekki annað en Framsfl. hafi verið með alveg sérstaka úttekt á Evrópumálunum og hafi sinnt þeim eins og honum hefur fundist henta. Ég veit ekki annað en formaður Sjálfstfl. hafi lýst yfir sínum skoðunum og margir þingmenn Sjálfstfl. sem ég veit ekki betur en séu nokkurn veginn í þeim anda sem í Sjálfstfl. hefur verið varðandi þetta mál, þ.e. hugsanlega inngöngu okkar í Evrópusambandið.
Ég furða mig á því að verið sé að lýsa því yfir að einhverjum sé bannað að tala. Ég gat ekki séð annað en að hv. þm. gæti talað um þetta hér.
Það er svo aftur spurning hverjir séu heilir í þessari umræðu og hverjir hafi í gegnum tíðina leitt yfir þjóðina þær umbætur sem hana hefur skipt mestu máli, t.d. með EES-samningnum sem var samþykktur hér á þingi. Ég held að hv. þm. Margrét Frímannsdóttir hafi þá setið á þingi. Eftir því sem hún segir hér sjálf þá var hún á móti þeim samningi. Núna er allt ómögulegt heyrist mér ef fólk er ekki með því að ganga í Evrópusambandið. Hvað hefur breyst? Það væri kannski rétt að orða þetta frekar þannig, herra forseti: Er hv. þm. Margrét Frímannsdóttir að lýsa því yfir að hún vilji ganga í Evrópusambandið?