Kristján L. Möller (andsvar):
Hæstv. forseti. Hv. þm. Árni Steinar Jóhannsson spurði mig hvort mér fyndist ekki þetta ferli og e.t.v. það sem ég hef verið að tala hér um ósanngjarnt gagnvart Norðmönnum þar sem ég talaði um að Norsk Hydro hefði í raun og veru komið í bakið á okkur. Nei, ég tel það ekki ósanngjarnt sem við erum að segja gagnvart Norðmönnum.
Hins vegar vil ég ítreka það sem ég sagði áðan um ástand efnahagsmála í heiminum fram að 11. september og eftir þann tíma, að menn horfa kannski ekki nóg á þau hryðjuverk sem þar voru unnin á efnahagslífi Vesturlanda sem setti ýmislegt í bakkgír í framhaldi af því.
Síðan veit ég ekki og hef ekki heyrt í fréttum hvað kaup Norsk Hydro á álveri í Þýskalandi hafa haft langan aðdraganda, ég kann ekki að segja hvað það hefur tekið langan tíma. En auðvitað liggur í augum uppi að Norsk Hydro þurfi að skoða fjárfestingarstefnu sína í framhaldi af því að kaupa þá miklu og stóru verksmiðju í Þýskalandi. Ég vona hins vegar að Norsk Hydro, vegna þess að þeir eru miklir fagmenn á þessu sviði og sennilega langfremstir í álbransanum, verði með í þessu verkefni hjá okkur, þó svo að ég gráti það ekkert að nýr aðili komi inn í þetta púkk með okkur.
Hv. þm. spyr hvort ég telji það ekki vera erfitt fyrir Austfirðinga að bíða og bíða eftir stóriðju. Jú, það er það. Ég hygg að það sé líka mjög erfitt fyrir Austfirðinga að hlusta á málflutning Vinstri grænna í þessu máli vegna þess að hann hefur verið dálítið rokkandi. Fyrst var hann eingöngu um umhverfismál, síðan snerist hann um efnahagsmál og nú snýst hann um þá von að þetta mál detti upp fyrir vegna þess að Norðmenn eru að gera eitthvað annað.
Ég verð að segja alveg eins og er, herra forseti, ég reyndi að tala skýrt áðan og lýsti yfir stuðningi við þetta verk og reyndi að færa rök fyrir því. Ég er algjörlega ósammála þingmönnum Vinstri grænna í andstöðu þeirra gegn þessu verki vegna þess að mér finnst hún ekki vera á réttum nótum.